Vorverkin hafin. Frost er farið úr jörðu, einstaka skaflar eru eftir en undan þeim kemur gróðurinn í góðu standi og páskaliljur eru farnar að láta á sér kræla.
Við stungum niður 200 græðlingum, aspir og jörvavíðir.

Stærsta seljan var farin að hallast ógnvænlega, líklegast er jarðvegurinn farinn að skríða undan henni. Hún var bundin við staur og rétt af. Vonandi nær hún að festa sig aftur.

No comments:
Post a Comment