Monday, November 1, 2021

Mánudagur 1. nóvember 2021

 Nú er haustið að koma, hitinn er um frostmark á morgnana og fer í nokkrar gráður yfir daginn. Samt hefur að mestu verið stillt og milt haustveður. Það voru þó ekki miklir haustlitir á öspum, laufið fauk allt af í fyrstu lægðinni. 

Við vorum boðin í heimsókn til Sólveigar og Óla í Lambhaga og skoðuðum þar allt mögulegt. Þau eru með svakalegt safn af lyngrósum og þau eru líka með ótal hlyni og eikur. 

Þau gáfu okkur fullan poka af fræi af gullregni. Þau gáfu okkur bakkaplöntur einu sinni og þær hafa vaxið svakalega, eru stærðar tré núna, og fara vonandi brátt að blómstra. 

Sáði gullregni í einn bakka. Svo kláraði ég loksins núna að prikla sitkagreni frá því í vor, þetta urðu nokkrir bakkar af efnilegum, en frekar smáum plöntum. 

Haustverkum er nú formlega lokið, nema hvað ennþá er mikið af gulrótum eftir í kerjunum. Það var nokkuð merkilegt, að hnúðkál og spergilkál hafa sjaldan vaxið annað eins, þá voru gulræturnar óvenjulega lélegar. 



No comments:

Post a Comment

Blog Archive