Enn frábært veður, þó ekki eins heitt og undanfarna daga.
Byrjaði á því að fara á Miðhraun f.h. til þess að klippa niður víðinn frá því í fyrra. Klippti hann allan vel niður, nema ég hlífði nokkrum af brekkuvíði, hann vex oft mjög fallega óklipptur.
Setti niður einn bakka af myrtuvíði, 30 plöntur (af 35 lifandi).
Allt leit mjög vel út, allt grenið lifandi og nánast allur víðir og allar aspir, eftir því sem best varð séð.
Hélurifsið er laufgað, mjög fallegt og allar plöntur virðast á lífi.
Eftir hádegi fórum við í Hafnargerði. Halldór tók niður ónýta hænsnagirðingu og ég mokaði mold í og úr kerjum, nú eru hindber í 3 kerjum. Svo sáði ég hnúðkáli og spergilkáli í bakka, fer með hann til Sædísar á morgun.
Að lokum var fyrsta priklun ársins, priklaði 5 fp35 bakka af bergreyninum fallega.
Þar sem ég var hjá Stjána og Berglindi í San Sebastian um páskana vaxa nokkur mjög falleg Ginkgo biloba tré. Umhverfis eitt þeirra var mikið magn af fræi, illa lyktandi ávextir sem líkjast ferskjum. Við tókum slatta af fræi, Berglind flytur nokkur með sér til Hollands og Lalie fékk nokkur til að setja niður hjá sér. Mín fræ eru komin í pott, ég bíð spennt eftir spírun.
Svona leit Gingko út frá svölunum, líktist einna helst lerki sem er að byrja að laufgast.

No comments:
Post a Comment