Sunday, May 1, 2022

Sunnudagur 1. maí 2022

 Frábært veður alla helgina. Hægur vindur eða nánast logn, um 8-9°C og þurrt.       Allt að 14°C um miðjan daginn.  Síðdegis í dag, sunnudag hvessti heldur og á morgun er spáð rigningu. Við drifum niður um það bil 70 bakkaplöntur af reynivið, sem ekki náðist að gróðursetja í fyrra. Lagerinn er allstór núna, en mikið af birki og víði á að fara upp á sléttuna í sumar. 

Priklun (ásamt Rakel): sáðbakkar frá Sædísi, brokkolí, rautt og grænt, grænkál, rautt og grænt, og síðan sumarblóm: fjólur, morgunfrú, hádegisblóm, daggarbrá. 

Ég tók svo sumargræðlingana frá því í fyrra og pottaði þá sem lengst eru komnir. Best rættu sig þeir sem settir voru í hreinan vikur eða nánast hreinan svartan sand. Í mold var spírun ekki nærri eins góð. 

Bakkar undir akryldúk inni, heldur raka og hækkar hitastig, mýsnar fara ekki eins mikið undir dúkinn. 
Undir   dúknum eru bæði matjurtir, sumarblóm og nýpottaðir græðlingar. 

Glæsitoppur rætti sig best af öllum, af honum fengust 18 græðlingar. Blátoppur: 7, Sýrena (rauð) 18, sýrena 'Hallveig' 13, sýrena 'Júlía' 6, blóðrifs, bleikt 8, surtartoppur 3, garðakvistill 3, garðakvistill 'Diablo' 3, skógartoppur 3. Eiginlega ágætur árangur, nokkrar tegundir eru eftir. 

Pottaði í síðustu vikur 5 fp35 af bergreyni. Hann stendur sig alltaf vel. Mýsnar smökkuðu aðeins, bakkarnir eru ekki eins aðgengilegir uppi á skápnum. 

Plómutréð er í fullum blóma í fyrsta sinn. Það verður spennandi að sjá hvort einhverjir ávextir þroskast. 


                                   

No comments:

Post a Comment

Blog Archive