Saturday, June 25, 2022

Laugardagur 25. júní 2022

 Fínt veður í dag og í gær, sólskin og N átt, svolítið köld, en þó hlýrra en var í upphafi vikunnar, hiti 8-9°og N-10.  Kaldast var 3°c eina nóttina, og það var líka kalt á daginn. Við erum búin að gróðursetja ýmislegt, aspir, víði, reynitré o.fl. Nú verður líklegast hlé á gróðursetningum um tíma. Setti samt niður í dag 2 plöntur frá trjáklúbbnum, Juglans nigra, Valhnetur, og apahrelli, Araucaria araucana. Þetta er lokatilraun með þessa tegund, sem ávallt hefur drepist hjá mér í pottum, ýmist inni í gróðurhúsi eða úti í karmi. 

Svo höfum við slegið og snyrt, það er alltaf nóg að gera. Þrösturinn gerði sér hreiður inni í gróðurhúsinu og var með mikil læti þegar við vorum þar á ferð. Sem betur fer er hann farinn núna með ungana. 

Þrastarhreiður.

Afmælisdrengurinn að setja niður grænmeti 20. júní. 

Akurinn og skjólbeltin í norður og austur. 






No comments:

Post a Comment

Blog Archive