Tuesday, June 14, 2022

Þriðjudagur 14. júní 2022

Fínt veður, skúrir og hiti 10-12°C. Gola. 

Það hefur ekki viðrað til gróðursetninga um tíma, en nú gripum við tækifærið. 

Gróðursettum 50 bakkaplöntur af alaskavíði í NA hlutann. Þar er hellingur af plöntum að vaxa upp, aspir, greni og reyniviður. - Meira á leiðinni. 

Gróðursetti 5 rauð birki í NV skrautreitinn, líka 4 stór rifs, 1 gullrifs, 1 kasmírreyni og 1 fjallaplómu. 

Í gamla akurinn: 1 sunnureyni (Sorbus sargentiana), 1 sýrena 'Agnes Smith', 1 svartyllir, 1 blóðbeyki.  

7. júní 2023 -  Allar þessar plöntur eru lifandi og fallegar, voru ekki komnar af stað þegar vestanáhlaup gerði og mörg eldri tré fóru afar illa. 

Nýr lundur með rifsi og rauðu birki. 

Stórkvistur

Lúpína sýnir bleikan lit

Lambagrasið bæði hvítt og bleikt


No comments:

Post a Comment

Blog Archive