Friday, July 1, 2022

Föstudagur 1. júlí 2022

 Nokkrir dýrðardagar að baki, logn og 15-18°C. Sól eða skýjað með köflum. 

Dagarnir hafa farið mikið í að hreinsa til í kerjum og körmum, nú er hlé á gróðursetninum. Setti samt niður garðakvistil 'Diabolo', hann fór nálægt græna garðakavistlinum. Setti líka beyki í lítið blómabeð. 

 Svo setti ég fullt af blómum sem komu upp úr villiblómasáningu, ekkert þeirra er farið að blómstra. Setti inn á milli sumarblóm, fjólur á staði þar sem þær mega fjölga sér, möggubrá þar sem hvítan lit vantaði og síðan helling af hádegisblómi, það er heldur ekki farið að blómstra. Örfáar morgunfrúr. 

Búin að klippa og snyrta helling af trjám, en ekki mikið slegið. 

Í gær fór ég um allt og tók helling af myndum, etv. nota ég eitthvað af þeim á heimasíðuna hjá Trjáklúbbnum. 


Blágrenið gefur nýjan lit í limgerðið. Hlynurinn t.v.



No comments:

Post a Comment

Blog Archive