Monday, July 18, 2022
Mánudagur 18. júlí 2022
Gott veður, 12°C og logn. Síðdagisskúrir.
Nú stendur yfir græðlingataka, bæði hjá Sædísi og hjá mér. Búin að taka græðlinga af rauðu sýrenunni, þokkasýrenu 'Júlíu', glæsitoppi og af geislasópi. Það hefur ekki gengið vel með þá síðustu 2-3 ár, en ég held áfram að reyna. Nú setti ég þá í potta, jarðvegur mold og vikur til helminga. Fór með alla þessa græðlinga heim, ikea plastkassarnir standa núna við ofninn í stofunni, og fá að vera þar í amk 3 vikur. Svo ætla ég að taka lokið af og leyfa þeim að anda svolítið áður en þeir fara aftur í gróðurhúsið til að búa sig undir haustið.
Tók helling (10x fp40) af geislasópi hjá Sædísi, þar blandaði ég moldina til helminga með svörtum sandi og notaði rætingarhormón á helming bakkanna (gleymdi því fyrst). Allir aðrir græðlingar pottaðir í mold með rætingarhormóni.
Í fyrra tók ég álíka mikið af græðlingum, en aðeins fáeinar plöntur komust á legg. Sædís kennir þar um líka of mikilli vökvun í vetur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment