Sunday, October 9, 2022

Sunnudagur 9. október 2022

 Fínt veður, hiti um 6°C og nánast logn. Spáð miklum hvelli, svo við héldum áfram að ganga frá fyrir haustið. 

Búin að loka körmum sem á að loka og fergja með netum og grjóti. 

Búið að loka fyrir vatnið. 

Búið að taka dalíurnar úr pottunum og koma þeim fyrir í frauðplastkössum. 

Klippti dalíurnar sem enn voru í fullum blóma. 
Búin að sá reyniberjum og fl. haustsáningar. 

Búin að taka upp þær kartöflur sem til voru. 

Erum ennþá að taka upp gulrætur. 

Búið (fyrir löngu) að klippa ofan af öllum jarðarberjunum, strá sniglaeitri og strengja net yfir, svo þrestirnir hætti að róta í beðunum. 

Tæki og verkfæri komin í gróðurhúsið. Því var lokað 8. október í fyrsta sinn í sumar. 

Logalauf og eikur í skjóli sitkagrenis og aspa. Þær grunar ekki að vetur sé í nánd. 




No comments:

Post a Comment

Blog Archive