Saturday, November 12, 2022

Laugardagur 12. nóvember 2022

 Fallegt veður í dag, smávegis rigning fyrripartinn en bjart síðdegis. Logn, hiti 4°C. 

Fór og safnaði furukönglum í poka. Svo fórum við í Hafnargerði og tíndum elrifræ í stóra fötu. Sáðum þessu og eldra grenifræi á sléttuna. 


Það ætlar að taka tíma að græða upp þetta svæði.  En fræinu var sáð í lúpínubreiðurnar. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive