Sunday, May 7, 2023

Sunnudagur 8. maí 2023

 Ágætt veður, 10°C, hæg N-átt. Skýjað að mestu 

Um helgina gróðursettum við Halldór 50 smá birki í viðbót, á eyðimörinni, ekki langt frá lerkilundinum fína, með sifjalerkinu. 

Gróðursetti líka fleiri afganga, í ruslahauginn fóru 6 sólber (sáð af fuglum), 20 víðiplöntur, brekkuvíðir og líklega viðja. Gróðursetti líka 12 aspir í  NV stykki, þetta voru sáðplöntur frá Sædísi, ómögulegt að segja hvernig þær verða. En þær eru komnar svolítið á legg svo vonandi spjara þær sig. Á eftir einar 15 sem fara á svipaðar slóðir næstu daga. 



Það er ekki mikið að gerast í ruslahaugnum. Þarna eru samt ótalmargar lifandi plöntur. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive