Nú er loksins að hlýna, 6°C og hæg S átt. Ekkert næturfrost sl. 2 nætur.
Gróðurhúsið er opið, en fáar býflugur sjást á sveimi. Vonandi hefur kústurinn sem þóttist vera býfluga gert eitthvað gagn. Plómutréð danska fór loksins að blómstra og það af slíkum krafti að ekki sá í greinar fyrir blómum.
Hreinsaði aðeins til í körmum og gróðursetti 4 bakka af birki, allt 100 plöntur. Þær fóru í stykkið "ruslahauginn", í bakkann þar sunnan við, innan um aspargræðlinga, og í bakkann sunnan við veginn, syðst í það stykki. Þetta voru allt örsmáar plöntur og mikið gras í pottunum, mér fannst ekki taka því að geyma þær lengur.
Í sl. viku gróðursetti ég svolítið í stykki vestan við skúrinn okkar og norðan við skúr Rakelar. Það voru ein 20 birki, 5 aspir (líklega keisari, hugsanlega Haukur).
Búið að sá gulrótum í ker 6 og 7. Þrjú ker eiga að duga. Kíkti aðeins í fyrsta kerið, þar spírar arfinn sem aldrei fyrr, þrátt fyrir þykkt lag af sandi.
Nú er ýmislegt að lifna, spennandi sumar framundan.
No comments:
Post a Comment