Thursday, June 22, 2023

Fimmtudagur 22. júní 2023




 Gott veður í dag, sól með köflum, 14°C og mjög hægur vindur. Sama í gær, þá var meiri sól. 

Við erum byrjuð að tæta akurinn, nú styttist í að við getur sett niður grænmetið, en það vex alveg ágætlega í pottunum. 

Setti niður sl. sunnudag í 4 ker, kartöflur, hvítkál, brokkolí og rauðrófur. Tók upp jarðarberin úr kerjunum, þau fóru illa í vorfrostum og voru þar að auki að kafna í grasi. Tók skárstu plönturnar og sameinaði í eitt ker, þar þarf að safna græðlingum í haust, en allir græðlingar í pottum drápust í vor. 

Plöntur eru að taka við sér eftir kuldakastið.

Keisaraaspir, nokkurra ára gamlar. Þær fóru mjög illa í storminum, en eru að byrja að laufgast.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive