Þokkalegt veður, 13°C en allhvöss N-átt. Engin rigning, en síðustu viku hefur rignt hressilega, síðast 20 mm frá föstudegi til laugardags. Því hefur frestast enn að setja niður grænmetið.
Í nokkrum skorpum setti ég niður 30 grenitré, allstórar pottaplöntur.
Þær fóru á nokkra staði, 2 í ruðninginn N-megin, 5 vestan við akurinn, 8 stykki í brekkuna sunnan við skúrinn og restin N og NV við verðandi trjásafn NV við akurinn.
![]() |
| Brekkan ofan vegar og sunnan við lækinn. |
![]() |
| NV við verðandi trjásafn. |
![]() |
| Líka NV við verðandi trjásafn. |
Setti líka rauðgreni V við akurinn, nálægt gamla birkinu. Það var gjöf frá Sólveigu og Ólafi Ragnari.



No comments:
Post a Comment