Frábært veður, hæg gola og 16-17°C.
Ölfusið var valið. (Sleppti ferðinni til Sigurðar á Litlu Reykjum í þetta sinn).
Við byrjuðum hjá Birni í Litlu Hlíð, hann er næsti nágranni við Icelandic Glacier water sem er með risastóra vatnsverksmiðju þarna undir fjallinu.
Björn er með einn ha lands þarna, hann hóf þar ræktun 1970. Þetta er sannkallaður lystigarður hjá honum og bæði trjáflóra, fjölæringar og runnar afar fjölbreyttir.
![]() |
| Húsið, lækurinn og brúin. |
![]() |
| Klifurhortensía sem þekur háan klett í garðinum. |
Ferðin endaði á sumarhúsalóð Aðalsteins Sigurgeirssonar "Baugar" kallast staðurinn. Þar eru ótal tegundir og ótrúlegur vöxtur.
![]() |
| Dáðst að pínulítilli eik. |





No comments:
Post a Comment