17°C, logn, léttskýjað.
Hlýtt undanfarið, stundum vindur, en alltaf þurrt. Vöxtur er þokkalegur, þrátt fyrir kalt vor. Blómgun trjáa er þó ekki mikil.
Blómin standa sig, einkum er ég ánægð með eldliljurnar sem ég kom út í fyrra, þær blómstra allar vel í ár.
![]() |
| Þessar standa í ruðninginum, ef vel er gáð sést jakobsstiginn vinstra megin, hægra megin er vatnsberinn búinn, en hvíta bláklukkan er í ham á bakvið, sést illa á þessari mynd. |
![]() |
| Sýnishorn af blómakeri. Sáði fyrir kornblómi og tóbakshorni, hér er það fyrsta (bleikt) byrjað að blómstra. |
Ekki stóð til að taka græðlinga í ár, en fyrir slysni sleit ég stóra grein af lavender, og notaði hana í græðlinga. Tók líka græðlinga af birkikvisti.


No comments:
Post a Comment