Thursday, May 23, 2024

Fimmtudagur 23. maí 2024

 Gott veður fram eftir degi, A6 og 8°C.  - Spáð mikilli rigningu og roki í kvöld og á morgun. 

Fór og var um tíma að dást að framgangi gróðurs, harla ánægð með það sem ég sá. Allt að lifna og ekki virðist vera mikil kal, þó á ég eftir að klippa til eitthvað sem kól í fyrra. 

Gróðursetti 30 blágreni sem ég fékk hjá Barböru Stanzeit fyrir nokkrum árum. Það er af trjám sem ræktuð hafa verið hjá skógrækt Hafnarfjarðar? 

Bætti við 26. maí 38 stykkjum, í skrautsvæði við hliðið. Þar þrífast vel birki, reynitré, viðja og aspir. 

Plöntur vaxa hægt eins og lög gera ráð fyrir, en þær eru núna að verða mjög flottar.

 

 


Þessar fóru í brekkuna suður af vinnusvæðinu. "Heimagarðinn". 

Þá gróðursetti ég 3 blátoppa, 2 meðfram skurðinum, þar var einn fyrir. Sá síðasti fór í svæðið vestan við akurinn og austan við veginn, þar voru 2 blátoppar fyrir. 


Í vikunni fór ég og tók svolítið til í gróðurhúsinu, sópaði og henti rusli. Pottaði dalíur, þær sem voru komnar af stað.

 

 
Dalíur 
th. dalíur, tv. ker með baunagrasi (í músaneti), fyrir aftan er stokkrósin komin af stað og einn valmúi sem er laumufarþegi. fyrir framan er hostan að gægjast upp tv og th er það hjartablómið. Í miðjunni smá squash og kúrbítur, forræktar í stofunni. Þessar plöntur fengu sjokk þegar þær fóru út, en virðast ætla að lifa af. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive