Thursday, May 9, 2024

Fimmtudagur 9. maí - Uppstigningardagur

 Frábært veður í dag og í gær, sólskin og 10°C nánast logn. 

Allt að gerast í sveitinni núna. Gróðurhúsið iðar af lífi, humlurnar hafa sannarlega fundið plómutréð og suða stanslaust. Laukarnir eru farnir að sýna lauf, og fjölæringar skjóta upp kollinum, tré byrjuð að bruma, einkum reynitré, sýrenur og toppar. Hélurifsið er allaufgað. 


Tek oft myndir af þessu hélurifsi á vorin, breiðan bara stækkar. Upphaflega ein planta. Bakkaplöntur sem við settum niður f. 2 árum eru þarna í röð, virðast allar lifandi, en smáar ennþá. 


Þessir laukar eru síðan s.l. haust, en ég finn ekki hvaða laukar þetta eru, held etv. að þetta séu risagraslaukkar, Allium. Eru framan við grenitré og elri við stóra steininn. 



Sáði gulrótum í 2 ker; Nantes 5. Í fyrra var það Nantes 2 sem óx best.  Eitt bréf í hvort ker, 2000 fræ. Reynar missti ég aðeins fræ í seinna kerið og varð að opna annað bréf, það heitir Amsterdam Forcing3 og á að vera fljótsprottin sort. Þarna verð ég líklegast að grisja, það hef ég reyndar aldrei gert almennilega. 

Kurlaði greinar sem ég klippti í vetur.  Þá fór ég eina ferð og klippti mjög vel niður brekkuvíðinn sem orðinn var mjög ljótur og laufgaðist illa í fyrra og hitteðfirra. Það tók 45 mínútur að fylla kerið af kurli, þarf að taka annan skurk á morgun. 

Skrautreynirinn, allur að koma til. Sést illa á myndinni. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive