Afmælisdagurinn stóri. Lokaundirbúningur fyrir Danmerkurferð. Það mun enginn vökva næstu viku. í gróðurhúsinu vökvaði ég vel og það seytlar vatn í kerið þar sem stóra plómutréð er. Inger frænka taldi að það gæti verið Mirabeller, á eftir að rannsaka það betur.
Gróðursetti 50 sitkagreni og 5 birki. Auk þess lítil birki og sjálfsáð reynitré í "ruslareitinn". Reyndi eins og ég gat að losna við alla potta með lifandi plöntum úr körmunum. Sitkagrenið fór austarlega í landið, hátt upp í brekkuna og það síðasta alveg efst þar sem sléttlendi tekur við. Skoðaði svolítið grenið sem við gróðursettum beint úr bökkum fyrir 2-3 árum, það lítur bara mjög vel út.
Allt annað setti ég í ker, rúbinreyni, bergreyni og pínulítil sitkagreni. Glæsitoppurinn fór út á akur ásamt graslauk.
2 bakkar af Hubenesis reyni fara í langtíma 2pössun" hjá Sædísi.
Það sést varla á þessum myndum, en þarna eru þekjuplöntur frá Sædísi sem ég gróðursetti í fyrra og nokkur birki sem eru að taka við sér.


No comments:
Post a Comment