15°C og mjög hægur vindur, sólskin fram eftir degi og síðdegisskúrir.
Í gær fór ég um allt landið og var harla ánægð með það sem ég sá. Núna er gróðurinn auðvitað upp á sitt besta. Reynitré, sýrenur, kvistir og allt annað reyndar alveg um það bil að springa út. Meira að segja gullregnið er komið með blómvísa.
Verður spennandi að sjá hvort þeir ná að blómgast.

No comments:
Post a Comment