Friday, July 12, 2024

Föstudagur 12. júlí 2024

 14°C, 14-23 m/sek. Sem sagt, brjálað veður. Ég fór í Hafnargerði og lokaði báðum gróðurhúsum og reyndi að setja lausa plötu í litla gróðurhúsið og skorða hana með netinu. 

Viðgerð á gróðurhúsi! Ein platan er brotin og ég reyndi að skorða aðrar plötur undir netinu í dag. 




Eikin frá Lapula, hún svignaði niður að jörð í storminum. Ég þurfti að nota stiga til að ná að berja með sleggjunni á staurinn. Fremst er karmur með kornblómi sem sáð var til í vor, ásamt öllum þeim eldliljulaukum sem voru í uppeldi í gróðurhúsinu. 



Færeyjarifsið (bleika) var mjög ræfilslegt í vor, það laufgaðist seint, en nú er það alþakið sínum bleiku blómum. Brekkan að verða nokkuð falleg. 





Sumardagur í sveitinni!

Sorbus 'Do dong´ stendur sig bara mjög vel, nýgróðursettur í skrautreitinn. Hann hafði vaxið um nær 50 cm í potti á pallinum í Austurholti svo ekki var um annað að ræða en flytja hann. Við hlið hans er ný tegund af smára með eldrauðum blómum sem ég fékk hjá Sædísi. Vonast er til að hann muni sá sér. 




No comments:

Post a Comment

Blog Archive