Monday, August 5, 2024

Sunnudagur 4. ágúst 2024 - Verslunarmannahelgi

 Gott veður 19°C, mjög hægur vindur en skýjað. 

Nú stendur yfir frágangur í sveitinni, fór með smávegis dót og nokkrar garðyrkjubækur í gáminn. Gekk svo langan hring og skoðaði. Vöxtur er svo sem í lagi, rósirnar að klára blómgun og beðið er eftir reyniberjum af mörgum sortum. Sumarið hefur alls ekki verið gott, það hafa komið margar lægðir og það hefur rignt mikið, fáir sólardagar. 

Grasið vex og vex, en nú er ég hætt að slá. 

Eikurnar eru í góðum gír og jafnvel logalaufið er með nokkur blóm. 



No comments:

Post a Comment

Blog Archive