Friday, September 26, 2014

Föstudagur 26. september 2014

Gott veður í dag, en nú er farið að kólna, hiti ekki nema um 4°C þegar leið að kvöldi. Undanfarið hefur rignt ótæpilega, en hann hékk þurr í dag.  Við fórum  og tókum upp rúm 12 kg af kartöflum, grösin eru ennþá heil og fín og það sést dagamunur á stærðinni. Við kláruðum líka að ganga frá lokunum upp við gáminn og strengdum net yfir karma með pottum og með græðlingum. Svo tókum við upp svolítið grænmeti í matinn.
Þetta er sýnishorn af grænmeti sem fer í súpu á morgun, risavaxnar 'Sauðlauksdals' kartöflur, hvítlaukur, gulrætur, salat, skessujurt og mini-hnúðkál.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive