Sunday, September 28, 2014

Sunnudagur 28. september 2014

Mikil rigning í gær og í nótt, en í dag stytti upp og það var logn og sólskin mestan hluta dagsins, ein góð skúr kom þó. Hiti um 6°C.
Við tókum upp kartöflur, ennþá er akurinn á floti, en það er ótrúlegt hvað kartöflurnar vaxa samt.  Við tókum upp rúm 7 kg, kláruðum beð 10 og tókum nokkur grös neðst úr beðum 1 og 2. Þar er ansi blautt.
Beð 10, búið að taka upp (úr læknum)
Beð 13, talið er að hér séu stórar kartöflur



Grenið í brekkkunni, það potast upp hægt og bítandi.
Haust í ruðningnum. Fremst sést í garðasýrenur í pottum.
 Við fórum aðeins yfir skjólgirðingar, því spáð er stormi á morgun og næstu daga. Við festum betur netið í kringum risafuruna og Halldór lagaði skjólið austanmegin við akurinn. Svo náðum við að gróðursetja heilan helling, 1 bakka af loðvíði 'Ugga' (37), einn bakka af ilmreyni  (35) og 10 garðasýrenur. Svo setti ég 30 páskaliljulauka umhverfis 5 garðasýrenur uppi í heimagarðinum, nálægt þeim stað þar sem við settum niður jörvavíði í fyrrasumar og nokkrar blæaspir í vor. Þangað fór líka helmingurinn af loðvíðinum.  Hinar garðasýrenurnar fóru austan við akurinn, þar setti ég 10 stykki í fyrra og þær lifðu ágætlega af í vetur.  Reyniviður og loðvíðir (rest) fóru í NA stykkið þar sem við höfum verið að þétta undanfarið.

Aspirnar í norðurstykkinu. Ekki miklir haustlitir, en þær eru orðnar vindbarðar. Sjá má grátt í Hafnarfjalli. 






No comments:

Post a Comment

Blog Archive