Hellirigning í dag og í gær, úrkoma síðustu viku yfir 40 mm, líklega nær 45mm. Hitinn ennþá milli 10-12°C allan sólarhringinn og lítill haustsvipur á öðru en grasi. Þó er aðeins farinn að koma haustlitur á Hafnarskóginn.
Í gær fór ég og snyrti til hvítlaukinn. Stönglarnir voru morknir og laukurinn náði ekki að þorna undir þeim. Ég klippti alla stöngla og raðaði laukum í einfalda röð í körfur til þerris. Thermidrome laukurinn frá Danmörku var tekinn upp fyrr og þornaði miklu betur. 2 ker eru með allt öðruvísi lauka. Þeir eru litlir og með mjög stinnum og hörðum stönglum, líklegast er þetta laukurinn frá Prag. Ég tók upp úr öðru kerinu, en hitt sem er framan við bláa gáminn fær sennilega að vera á sama stað í vetur, það er hvort sem er lítið varið í laukana eins og er.
Tuesday, September 9, 2014
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
September
(11)
- Sunnudagur 28. september 2014
- Föstudagur 26. september 2014
- Miðvikudagur 24. september 2014
- Þriðjudagur 16. september 2014
- Laugardagur 13. september 2014
- Miðvikudagur 10. september 2014
- Þriðjudagur 9. september 2014
- Sunnudagur 14. september 2014
- Miðvikudagur 3. september 2014
- Þriðjudagur 2. september 2014
- Mánudagur 1. september 2014
-
▼
September
(11)
No comments:
Post a Comment