Saturday, August 8, 2015

Laugardagur 8. ágúst 2015

Ágætt veður, Norðlæg átt, 2-3 m og 13°C. Skýjað og smáskúrir. Við gróðursettum heilan helling; 30 aspir sem við tókum af akrinum fóru í stykkið austan við miðjan akurinn. Á svipaðar slóðir settum við 8 aspir sem voru í bakka og sömuleiðis 26 jörvavíði úr bakka. Þá gróðursettum við 17 blárifs í vesturbrekkkuna og 2 stórar furur nálægt greni skammt frá hindberjaplöntunum. Þær eru reyndar í góðum gír og strax farnar að skjóta rótarskotum.  Í "leynigarðinn" minn fóru 7 körfuvíðir 3 kasmírreynir. Og að lokum fóru 67 bakkaplöntur af gulvíði (úr landinu) og 9 sitkaelri upp á sléttuna miklu.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive