Fínt veður, 18°C, sólskin mestan hluta dagsins og nánast logn. Dró aðeins fyrir sól undir kvöld, en engin rigning.
Við gróðursettum í gær og í dag um það bil 140 bakkaplöntur, brekkuvíði og jörvavíði 'Katla'. Þetta fór allt í heimagarðinn til að þétta raðirnar þar sem áður voru komnar aspir með nokkuð stóru bili. Fyrri hlutinn efst neðan við bugðuna á læknum, hinn hlutinn ofan við "leynigarðinn" þar sem sýrena og yllir eiga erfitt uppdráttar. Við sáum í vetur að þétting er nauðsynleg til þess að stoppa skarann sem skefur börkinn af trjánum.
Jörvavíðirnn vex á ógnarhraða og er bæði hærri og gildari en flestar aspanna sem þó hafa verið á þessu stykki í nokkur ár. Það má vel vera að hann verði ekki eins fallegur síðar, en núna gerir hann sannarlega gagn.

No comments:
Post a Comment