Undanfarna viku hefur verið nokkur úrkoma, ekki mjög hlýtt, en samt nálægt 10°C. Grænmetið vex mjög vel þessa dagana, við eigum mikið af gulrótum í kerjum og gulrætur úti á akri eiga nokkrar vikur eftir. Við höfum farið með hnúðkál og hvítlauk í Frú Laugu og í dag fer ég með gulrætur í Ljómalind.
Ég fór með hnúðkál og gulrætur í skólann líka, og uppskar mikið hrós fyrir.
Við tókum upp allan hvítlaukinn áður en fór að rigna svona mikið, hann var um það bil að verða ofþroskaður og nokkrir laukar voru farnir að opnast. Meirihlutinn samt mjög flottur og við fórum með 25 stykki í Frú Laugu og þeir seldust þar strax.
 |
| Kvöldverðurinn, ennþá eru jarðarber að þroskast. |
 |
Sending af fara til Frú Laugu.
|
Við höfum líka náð að gróðursetja talsvert, Halldór keppist við að ná
öspunum sem standa á beði á akrinum upp og gróðursetja þær.
No comments:
Post a Comment