Saturday, August 13, 2016

Laugardagur 13. ágúst 2016

S6, 13°C og skýjað. Nokkrir rigningardropar féllu.
Eftir langa þurrkatíð hafði ringt eina 10 mm í vikunni og ekki eftir neinu að bíða að drífa í að gróðursetja.  Ég fór upp á sléttuna með elri sem var orðið stórt og fallegt og plantaði því í röðina upp með girðingunni. 

Hér má sjá nýtt elri innan um eldri plöntur, brekkuvíði, grávíði, viðju og birki. það verður að segjast að þetta gerist hægt, en þó er eitthvað smávegis að gerast. Að lokum bætti ég jörvavíði á milli og líka ofan við þessa línu.


Hér er lundur frá því í fyrra með Ugga og sifjarlerki sem hefur dafnað vel. Hefur reyndar lifað einn mildan vetur og eitt mjög gott sumar. Verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive