Monday, August 29, 2016

Mánudagur 29. ágúst 2016

Yndislegt veður í dag, en í morgun kl. 7.30 var 1°C og frost var á bílrúðunni og líka á loki yfir karmi í Hafnargerði. Þar var sólin ekki farin að skína kl. 9.30, en líklega gerðist það skömmu síðar. Ég fór og opnaði gróðurhúsið. Kartöflugrösin féllu ekki, svo frostið hefur verið mjög vægt.
Það hefur verið einmuna blíða allan ágúst, hvessti einu sinni svo einhverju nam. Ótrúlega mikið af krækiberjum og líka af sólberjum og rifsi. Búin að sulta og safta og líka að frysta. Í fyrsta skiptið sem ég get líka borðað eins og mig lystir af berjum og það sér ekki högg á vatni. - Dásamlegt.
Það hefur lítið verið gróðursett, bæði vegna tímaskorts og það hefur verið þurrt, engin rigning alla þessa viku.  Samt náði ég að setja niður 14 hálfdauð baunakergi, þau fóru upp á sléttuna.  Þá bjó ég til enn einn furulundinn, þessi er í urð austan við akurinn, á fremur vindasömum stað. Þangað fóru 6 skógarfurur og 10 Pinus banksiana og þeim til halds og trausts fór einn bakki, eða 32 jörvavíðir 'Katla'.  Loks eitt rauðgreni sem ég fékk áreiðanlega úr trjáklúbbnum.
 Við fórum í heimsókn í Grímsnesið til Eddu, Hinriks og Auðar og svo til Steinars og Önnu. Þar virðast vera svolítið aðrar aðstæður en hjá okkur, t.d. vaxa aspirnar ekki nærri eins vel, en ölurinn er mjög fallegur og fururnar sérstaklega fallegar hjá Eddu, miklu fallegri en hjá okkur. Á báðum stöðum var mikil ánægja með blæaspirnar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive