Við fengum góða gesti, Ole Bønding og fjölskyldu. Þau fór með mér hringinn að Hraunfossum og svo í mat, og þau vildu endilega skoða ræktunina. Þau voru óskaplega hrifin og ánægð með súkkulaðiköku með villijarðarberjum og bláberjum.
![]() |
| Austan við akurinn, hér er heldur lítið að sjá (ennþá). |
![]() |
| Þetta átti að vera mynd af þeim í skóginum, hvar er skógurinn? |
![]() |
| Við Hraunfossa. |
Stóra villiblómið opnar ekki blómin, en heldur áfram að vaxa.
![]() |
| Blómklasar. |
Og inni í gróðurhúsinu er gaman að fylgjast með baununum sem vaxa með ógnarhraða og maísinn er farinn að mynda blóm. Ber hlíðaramalsins eru að verða fullþroskuð.
Í dag var síðasti dagurinn hjá Sædísi í bili. Við erum að verða búnar með fjölæru blómin, en ég á eftir að fara með henni í jarðarberin og eitthvað fleira. Fór með 3 bakka af fjölæringum í Hafnargerði, loksins er ég farin að fá áhuga á þessu fyrirbæri. Í dag setti ég niður 14 stykki í svæðið við klettinn, þar er skrautgarðurinn minn, þar sem ekkert vex, en ég held alltaf áfram að gróðursetja. Meðal þess sem ég setti niður í dag var nýr stigi, holtastigi með skærbláum blómum. Líka penstemon (gríma), fjalldalafífill o.fl.
Berjasprettan er svo engu lík, krækiberin stór og feit og talsvert magn að bláberjum. Rifsið er um það bil að verða tilbúið og sólberin eru þroskuð, stór og sæt. Fór með 2 kg í Frú Laugu og ætla að sjá til hvort eitthvað selst af þeim. Við förum vikulega með hnúðkál, ekki nema ca 30-35 kg í einu.





No comments:
Post a Comment