Sunday, October 1, 2017

Sunnudagur 1. október 2017

NV2, 12°C, logn, skýjað, svolitlar skúrir.
Í dag stefnir allt í blíðviðri eins og í gær. Þá skrapp ég svolitla stund eftir kennslu á Birfröst. Tíndi birkifræ af uppáhaldstrjánum okkur og þau á að geyma. Tíndi líka af öðrum trjám og dreifði því strax hér og þar. Setti niður 25 páskaliljur, aðrar 25 í dag.
Í dag sáði ég reyniberjum í einn bakka, tíndi þau á Bifröst, en þaðan fékk ég óskaplega fallegar plöntur fyrir tveimur árum, við höfum verið að planta þeim út í sumar. Það var svolítið meira af berjum, þau fóru með öðru fræi.  Reyniberin hjá okkur eru algörlega búin, fuglarnir kunna vel að meta veitingarnar.  Tók upp kartöflur og svolítið af gulrótum og tók til í gróðurhúsinu, nú þurfum við að fara að búa okkur undir veturinn.  Svo tíndi ég slatta af birkifræi og elrifræi og fór með það upp á sléttuna ásamt afgangi af reyniberjum. Dreifði þessu hér og þar, aðallega efst í landið og reyndi að strá fræi bæði í lúpínubreiður og líka á nánast bert land. Alltaf eykst það að sjálfsánar plöntur komi í ljós, í dag fann ég fyrstu furuna sem er sjálfsáð, hún er í malargryfjunni við afleggjarann.  Elrifræið er varla tilbúið, en af því er svakalegt magn.








Sætu kartöflurnar eru farnar að vaxa upp úr tómataplöntunni

Mikið magn af tómötum er loks að verða tilbúið.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive