Sunday, October 22, 2017

Sunnudagur 22. október 2017

Fínt veður alla þessa helgi, logn, sól með köflum og hiti 5-8°C. Held að það hafi ekki verið frost, allavega ekki mikið.
Það var hvassviðri í vikunni, við lokuðum gróðurhúsinu, í fyrsta sinn frá því í júní. Eitt lok fauk á haf út, allavega fannst það ekki.
Við gróðursettum 70 stykki af 'Ugga', bakkaplöntur, uppi á sléttunni. Þangað fór ég líka með fræ, aðallega birki og elri. Birkið er héðan og þaðan, við erum búin að taka frá fræ af úrvalsbirki sem við ætlum að sá í bakka næsta vor.
Svo gengum við frá fyrir veturinn, ég kláraði að klippa ofan af jarðarberjunum og við lokuðum hólfunum. Úti á akri vantar nokkur lok, en við lokuðum að hálfu leyti og settum net yfir. Það hjálpar allavega þannig að karmarnir fara ekki eins af stað. Halldór lagaði nokkrar girðingar líka, nú er allt að verða klárt.

Í rokinu fauk megnið af laufinu af trjánum, en fram að þessu hafa haustlitirnir verið mjög flottir.

ll
17.10.17
22.10.17


Þessar myndir eru etv. ekki mjög spennandi, en mér datt í hug að safna myndum sem eru teknar af þessum stað, með reglulegu millibili. Uggi er heiðgulur og fallegur, en laufið er fokið af bæði öspum og elri, eða það er orðið alveg brúnt. 


Og kvöldverður garðyrkjumannsins, plokkfiskur með brokkólí og soðnar gulrætur með. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive