Rigning og súld allan daginn, nánast logn og um 14°C.
Halldór leigði staurabor hjá Húsasmiðjunni á Akranesi og okkur tókst að bora 4 holur, þá gafst tækið upp. Halldór festi þessa 4 staura, þeir tilheyra skjólgirðingu við vinnusvæðið.
Ég gróðursetti 30 loðvíði í brekkuna neðan við Sædísarbirkið. Þar eru nokkrar furur og víðiplöntur sem reyna að vaxa í urð.
No comments:
Post a Comment