Sunday, July 22, 2018

Sunnudagur 22. júlí 2018

Áfram rigning, ekki mjög mikil þó. Logn, hiti um 10°C.
Það var ekki hægt að bora fyrir fleiri staurum, svo við gróðursettum svolítið. Tókum 3 lerki 'Hrym', sem ekki var að þrífast vel í Sædísarlundi (hjá borgfirska birkinu) og settum í staðinn 2 garðasýrenur frá Gúnda, þær síðustu. Lerkið fór upp á sléttuna, ásamt 2 hnausum af myntu.
Gróðursettum 5 gullregn austan við akurinn, þau sem við gróðursettum þar eru að rifna út, þrífast mun betur þar en í pottum.  Eitt greni fór á svipaðar slóðir, köllum það broddgreni, það á að vera til hjá okkur.
Setti svo 3 kóreureyni og 2 blátoppa í NV stykkið.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive