Sunday, July 1, 2018

Sunnudagur 1. júlí 2018

Ágætt veður, skýjað að mestu og skúrir síðdegis. Hiti um 11°C.
Við gróðursettum smávegis á sléttunni, 7 lerki 'Hrymur' sem okkur hafa áskotnast (2 frá Önnu og Steinari) og 5 frá Trjáklúbbnum. Létum fylgja 10 birki.
Ég sló svolítið með orfinu og byrjaði að hreinsa illgresi í karmi. Flutti rauða birkið inn, allar plöntur hressast strax og þær komast í þurrt umhverfi. Yllirinn fór aftur út í karm.
Þegar ég opnaði hænsnahúsið flugu síðustu 2 maríuerluungarnir út, svo nú er því ævintýri lokið. Brandöndin sást ekki, líklegast hefur hún áttað sig á því að eggin eru ófrjó.

Halldór kláraði að mála svarta gáminn, þurfti að koma því frá, því rafvirkinn er væntanlegur í næstu viku.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive