Monday, August 20, 2018

20. ágúst 2018

Rigning í dag, en þurrt hefur verið í heila viku. Hiti í dag var 11°C en í fyrradag um 18°C. Það var einn besti dagur sumarsins og við vorum í marga tíma með 7 barnabörn á svæðinu.


Eins og oftast var lækurinn vinsæll, en nú er líka hægt að velja um trampolín og tjald.
Brokkóliuppskeran er ágæt, en hnúðkálið er varla sjáanlegt enn. Gulrætur vaxa líka ágætlega, næstum eins úti og inni. Brynja kom og tók heilmikið af brokkólí með sér. Við borðum brokkólí eins og við getum og erum byrjuð að frysta.
Við höfum ekki gróðursett mikið, en eitthvað. Settum ein 50 birki og 15 reynitré í grasbalann við afleggjarann. Svo fór ég með 9 gráfurur (Pinus banksiana) og 7 logalauf í urð skammt frá Steini (við veginn), þar hafa nokkur logalauf komið ágætlega út frá því í fyrra, og fururnar eru hægt og sígandi að koma sér fyrir. Aspirnar ganga best, þær undirbúa líklega jarðveginn fyrir hinar.
Halldór skellti í þessa fínu brú yfir skurðinn, hún er smíðuð úr pallatimbri og endist vonandi í nokkur ár. Halldór Egill var hjá okkur í nokkra daga og hann handlangaði hjá afa sínum.


Og svo má ekki gleyma því að rafmagnið kom 14. ágúst, daginn sem ég kom heim eftir vikulangt kennaranámskeið í Danmörku.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive