Hefur verið ágætt undanfarið, en nú er skólinn byrjaður og vinnustundum fækkar.
Priklaði birki í 4 bakka fp 35, restin frá í vor. Það hafa orðið mikil afföll af birkinu, sem er óvanalegt, venjulega hefur gengið mjög vel með það. Reikna samt með að um 1000 plöntur verði tilbúnar næsta vor.
Jarðarberjasprettan var léleg í sumar. Við höfum ekki heldur sett net yfir allt, svo að þrestirnir hafa gert sér glaðan dag í beðunum. Karmur nr. 4 var aldrei settur niður, enda var svæðið þar sem hann átti að vera á floti fram í ágúst. Rifsber og sólber eru um það bil að verða fullþroskuð, en uppskeran er minni en í fyrra.
Þessar tvær myndir eru teknar sunnan megin við afleggjarann, þarna var algjör auðn. Fyrir nokkrum árum gróðursettum við slatta af litlum öspum, það sást ekki mikið til þeirra fyrr en í sumar, en nú eru þær að taka við sér. Neðri myndin tekin til austurs af þessu svæði. Sjá má furur og víð og aspir á víð og dreif.
Hér tók ég mynd af rjúpufjölskyldu út um bílgluggann, það eru líklegast 9 ungar eins og venjulega, og nú eru þær gjarnan á vappi á bílastæðinu.



No comments:
Post a Comment