Saturday, August 25, 2018

Laugardagur 25. ágúst 2018

Fínasta veður í dag, 14°C, sólskin og nánast logn. Í gær var ágætt, en skýjað, samt var næstum því frost í nost.
Við gróðursettum helling, gráreyni og kóreureyni (?), stórar plöntur í stórum pottum, það var mjög gott að koma þeim út. Fórum líka með restina af birki í litlum pottum og gróðursettum á svæðið við veginn þar sem furur og fl. hafa verið gróðursettar hjá öspum í sumar, líka 20 viðjur úr pottum.
Í gróðurhúsinu er sólblómið að opnast - loksins.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive