| Mið 10.04 kl. 14:00 | 10 m/s / 14 m/s | 8,7 °C | 10,5 °C | 52 % |
Við stungum 125 aspargræðlingum 'Pinni' heitir yrkið og þetta kemur frá Sædísi. Þeir voru frekar stórir, en við höfðum þá ekki mjög langa. Þeir fóru allir í svæðið sunnan við afleggjarann, skammt frá viðju sem þar var gróðursett fyrir mörgum árum, og norðanmegin við birki 'Emblu', sem Birkisystur gáfu Halldóri í afmælisgjöf fyrir löngu.
Við sáðum gulrótum í 2 ker, nr. 2 og 3. Þar voru rauðrófur í fyrra. Bættum við mold úr fleiri rauðrófukerjum. Þá eru 3 ker með gulrótum, það verður að duga í sumar.
Um síðustu helgi fór ég í sveitina, en þá var það mikið frost í kerjunum, að ekki var hægt að sá gulrótunum. Í staðinn klippti ég græðlinga af rifsi fyrir Sædísi og setti í 3 bakka. Þetta var ekkert úrvalsgræðlingaefni, en ég raðaði eftir stærð, svera græðlinga af tveggja ára viði, endagræðlinga, sem voru mjög grannir og svo miðjugræðlinga af árssprotum. Nú þarf að fylgjast með hvernig þessu vegnar.
No comments:
Post a Comment