Saturday, April 13, 2019

Laugardagur 13. apríl 2019


Fös 12.04
kl. 15:00
Aust-suð-austan 21 m/s23 m/s  /  50 m/s12,3 °C15,2 °C56 %
Lau 13.04
kl. 13:00
Aust-suð-austan 19 m/s20 m/s  /  42 m/s11,9 °C13,1 °C63 %
Hlýtt, en mjög hvasst. Við fórum í Hafnargerði eh. í gær, föstudag og lentum í þvílíum stormi að það var varla stætt. Áður en hvessti fórum við með kerruna að Borg og tókum afklippur af öspum. Við náðum að klippa þetta í græðlinga, en treystum okkur ekki til að stinga þeim.
Í dag var spáð betra veðri fyrripartinn og við fórum af stað í fínu veðri upp úr kl. 9. Þá blasti við að járnplötur sem legið hafa undir fargi í nokkur ár, höfðu allar farið af stað og lágu dreifðar um mýrina. Það tók drjúga stund að safna þessu saman. Við settum þær í bílinn og fórum með þær beina leið í Endurvinnsluna. 
 Þá loks gátum við farið með aspargræðlinga. Við fórum með 75 stykki og stungum í barðið við lækinn, þar höfum við stungið græðlingum í nokkur ár. Þar eru stærstu aspirnar orðnar um það bil 1 m og mikið magn er að koma upp. Á sumrin sést þetta lítið þar sem þær ná varla upp úr grasinu. En þetta er að koma.





 Við urðum að fara heim upp úr kl. 13, enda orðið talsvert hvasst og ekki auðvelt að hemja græðlingaefnið. 
  Ég sáði í litla bakka, brokkoli, hnúðkál og rauðrófur. Þessir bakka fara til Sædísar í gróðurhúsið og verða þar á meðan ég fer til Frakklands í 10 daga. Sáði líka birki í 1 bakka, hann er í gróðurhúsinu og gler yfir. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive