Fínt veður í dag, skiptust á skin og skúrir, en hlýtt og nokkuð lyngt, hvessti ekki fyrr en um kvöldið.
Sun 28.04 kl. 15:00 | 5 m/s | 6 m/s / 11 m/s | 11,5 °C | 17,6 °C | 65 % |
Kláraði að prikla spergilkál, hnúðkál og rauðrófur. Raðaði þessu í gróðurhúsinu og breiddi akrýldúk yfir, heldur betur raka og vonandi heldur það músum frá. Nokkrar pínulitlar kartöflur sem ég setti í pott fyrr í vetur vaxa vel, setti þær í ker inni, ásamt baunum. Í hinu kerinu virðist seinselja vera að taka við sér, í það ker fór líka kúrbítur og sólblóm.
Halldór setti upp fuglahús úti, maríuerlan kemst ekki lengur inn í hænsnahúsið, nú er að sjá hvort þetta passar fyrir hana.
No comments:
Post a Comment