Eftir 8 daga fjarveru var gaman að koma aftur og sjá allt í örum vexti, ekki síst gras og ýmislegt illgresi, en líka tré og blóm í góðum vexti.Auður Halldórsdóttir er komin með börnin 3, við fengum góða hjálp við að gróðursetja birki. Við gróðursettum 4 bakka, fengum úr þeim 125 plöntur. Þær fóru allar í sléttuna.
Hér eru Amar og Dhrew önnum kafnir við að hjálpa til.
Priklaði Platanus, veit ekki hvort það er Platanus Platanus orientalis (Orientalsk platan) eða Platanus × hispanica (Almindelig platan). Fræið sem ég kom með frá Nantes spíraði afar vel, sem minnkar líkurnar á því að þetta sé London plane. Priklaði 45 plöntur í litla potta.
No comments:
Post a Comment