Tuesday, July 2, 2019

Þriðjudagur 2. júlí 2019

Frábært veður í dag, hlýtt, logn og sólskin.
Þri 02.07
kl. 16:00
Vest-suð-vestan 3 m/sm/s  /  6 m/s14 °C25,6 °C52 %
Var hjá Sædísi fyrri hluta dags, en svo fórum við í Hafnargerði og gróðursettum meira birki. Í gær fóru 2 bakkar og 1 í dag, í brekkuna austan við akurinn. Þar er stór eyða í trjáhringinn, en við höfum unnið í því að loka honum í nokkur ár. Margar aspir eru að komast á skrið núna, birki fór þarna niður fyrir 2 árum og svolítið af reyni, núna meira birki. Birkið er það sem ég sáði í fyrra og priklaði. Það urðu reyndar mikil afföll, samt eru þetta nálægt 1000 plöntur í það heila, meira en við höfum gróðursett samtals fram að þessu. Sáningar í ár misfórust, en í haust verður safnað fræi af miklum móð.
Ég setti salat frá Sædísi í ker í vor, en allt asíska salatið fór strax að spíra. Tók úr einu keri og setti trjáplöntur í staðinn, rauðrifs, gullrifs og plómu (veit ekki hvaða). Þar er einnig stór vatnsberi, sem gjarnan má sá sér. - Fann allt í einu út að það má alveg hafa eitthvað fallegt í kerjunum líka, þarf ekki allt að vera til að borða.
Geislasópurinn er búinn með sín blóm, en 2 brúskar af maríuskó geisla úti í móa.
Maríuskórinn er flottur í ár. 

Tók græðlinga af birkikvisti (sem er afar fallegur núna) og af geislasóp.
Fórum til Reykjavíkur 3. júlí - fengum gefins græðlinga af lavender (hjá Ólafi Daðasyni og Helgu). Setti 4 pínulitla græðlinga í pott með viki, í plastpoka.
Setti líka niður nokkra húslauka, prímúlur og búkollublóm. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive