Mikilvægum áfanga var náð um síðustu helgi, en þá fluttu hænurnar yfir í nýja kofann. Þær ólmuust þegar við handsömuðum þær og lét öllum illum látum, einkum og sér í lagi hún Frekja, hún orgaði ógurlega þegar hún var fönguð síðust. Loks tókst að koma þeim öllum inn. Ekki leið á löngu þar til þær virtust vera fullkomlega ánægðar með hýbýlin. Þær trítluðu um efri hæðina hinar ánægðustu og horfðu út um gluggana til skiptis og mátuðu sig á prikin.
 |
| Dömurnar spóka sig uppi. |
 |
Hlýlegt ljós inni.
|
Hér er komin þesssi fína girðing, þær voru ekki lengi að rata út, þar vilja þær helst vera. (19.okt.)
No comments:
Post a Comment