Sunday, May 10, 2020

Sunnudagu 10. maí 2020

Frábært veður laugardag og sunnudag, logn og sólskin, en næturfrost.
Búin að prikla allan skrautreyninn, 8fp25 og 2 fp40. 1/2 bakki af hlíðaramal komu úr bakkanum.
Þá tók ég upp hvítlauk sem spíraði í keri frá því í fyrra, tók flesta upp í haust, en þessir hafa ekki fundist. Nú er allur hvítlaukurinn 'Estisk rød' í pottum í gróðurhúsinu. Vona að þeir nái að blómstra.
Priklaði fyrstu sáningu af hnúðkáli og brokkolí, það er í pottum í gróðurhúsinu,  fáeinir bakkar.
Hænurnar fengu að fara út í gær, mér tókst ekki að ná þeim inn fyrr en klukkan var að verða 10. Þá var ein eftir úti og ég fann hana ekki þrátt fyrir leit. Loks þegar ég var að fara heyrði ég í henni, gargandi fyrir utan kofann, þar sem hún vildi fara inn. Þegar ég kom fór hún rakleitt í gamla hænsnahúsið, þar sem ég náði henni.
Í millitíðinni lenti ég í eltingarleik við maríuerlu sem hafði villst inn í hænsnagirðinguna og komst ekki út. Loks flaug hún inn í húsið og var ekki lengi að fljúga út þegar ég opnaði dyrnar.
Varpið er ágætt núna, í dag fengum við 8 egg og 3 í gær. Verst er að þær verpa út um allt, á gólfið uppi og niðri og í dag úti í garði líka. Við keyptum nýja varpkassa, vonum að það henti dömunum.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive