| Sun 17.05 kl. 15:00 | 6 m/s / 11 m/s | 8,9 °C | 19,6 °C | 45 % |
Ég hef smám saman náð upp runnamurunni hér í garðinum við Austurholt og í dag gróðursetti ég hana nyrst á akrinum, innan við sólberjarunna.
Í keri eru hindberin að vaxa í eina bendu, ég bjargaði frá þeim einni lyngrós og einni bóndarós, en allt í einu kom upp bóndarósin "Shirley Temple". Ég man ekki til að hafa nokkuð séð hana í fyrra. Færði þær í önnur ker.
Priklaði ilmreyni, í 6xfp35.
Páskaliljurnar eru æðislegar.



No comments:
Post a Comment