Sunday, May 3, 2020

Sunnudagur 3. maí 2019

Frábært veður í dag, en það var næturfrost sl. nótt. Sól og hiti í dag.
Sun 03.05
kl. 16:00
Vest-suð-vestan 3 m/sm/s  /  5 m/s5,2 °C15,9 °C38 %
Það hefur mikið gerst þessa helgi + 1. maí.
Við stungum 250 græðlingum af alaskavíði.  200 þeirra fóru í bakkann, nyrst, en 50 stykki ásamt 60 alaskaösp 'Haukur' fóru neðst í stykkið neðan við hliðið (austan við malargryfjuna). Þá fóru 25 alaskaaspir 'Sæland' í brekkuna norðan við lækinn, norðan við greni, birki og reyni sem við höfum gróðursett þar nokkur undanfarin ár.
1 bakki af 'Sæland'  og einn af 'Hauki' eru á vinnusvæði, ásamt hellingi af alls kyns græðlingum, frá því síðast hafa bæst við viðja, myrtuvíðir og gljávíðir (eða glitvíðir).
Í gróðurhúsinu er allt að lifna við. Gullrif er farið að sýna blóm og sýrenan 'Júlia' er með marga blómknúbba. Margt annað að byrja að laufgast. Laukarnir úti eru á fullu, nú reyni ég að stilla mig um að taka myndir á hverjum degi.

Fyrstu páskaliljurnar að blómgast 1. maí


Graslaukar o.fl. vex vel í skjóli lífræna limgerðisins
Í gróðurhúsinu priklaði ég fyrstu matjurtunum, það var svolítið af afgöngum frá Sædísi, salat, morgunfrú og nokkur hnúðkál og brokkolí. Fyrstu sáningarnar mínar þarf líklega að prikla í næstu viku, og sáning númer 2 fór til Sædísar í dag.
Priklaði 8 fp35 bakka af reyni, sem ég tel vera skrautreyni. Fylgist daglega með brumunum, það er eina vísbendingin sem ég hef um hvort það er ilmreynir eða skrautreynir.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive