Sunday, May 22, 2022

Sunnudagur 22. maí 2022

Sólskin og allhvasst að norðan, 8°C og allt að 15 m NA í hviðum. 

Laugardagur: gróðursetti 10 greni í NA stykkið, þar vantar meira skjól fyrir upprennandi trjásafn. Setti líka 1 bakka (27 plöntur) af sólberjum, þetta voru græðlingar í bakka. Þarna er talsvert magn af birki (Emblu) að vaxa upp. 




 Tók hélurifs sem eftir var í bakka, hefur lent í smávægilegri vanrækslu. Setti 12 stykki á nokkra staði í ruðninginn.  Restin fór í aðeins stærri potta, á það til vara. 3 burknar, líklega stóriburkni, sem á uppruna sinn í gróðurhúsinu á Mógilsá, þeir fóru í ruðninginn norðanverðan, nálægt brúnni. 

Það viðraði ekki til gróðursetninga, hvasst, en hlýtt. Ég tók til á vinnusvæði og sló svolítið, það er erfiðisvinna. Hreinsaði arfa úr öðru gulrótarkerinu. 
Alveg að verða mánaðargamlar!
Túlipanarnir eru ótrúlega flottir!
Flottir túlipanar í brjáluðu roki. 



No comments:

Post a Comment

Blog Archive