Frábært veður og mjög hlýtt í sólinni. 6°C NA10, köld gola. Næturfrost.
Fyrsta vetrarblómið fannst í dag.
Við sáðum gulrótum í ker nr. 6.
Gróðursetti 2 aspir 'Haukur' og 2 birki, nokkuð vænar plöntur, í stykkið við afleggjarann, nálægt hliði.
Gróðursettum 15 reynitré í bakkan austan afleggjara, þau voru í litlum pottum, en vel á veg komin.

No comments:
Post a Comment